Ragna Kristín
12.04.2009 21:49:36 / ragnakj

Draumar!


Hef verið að velta því fyrir mér hvað ætli draumar þýða. Af hverju ætli sumir muni alltaf hvað þá dreymir á nóttunni en aðrir muna það aldrei?

Ég til dæmis á það til að dreyma mikið og muna þá flesta en veit sjaldan hvað þeir merkja. Ég man kannski ekkert hvað mig dreymir í 5 vikur og síðan allt í einu koma kannski 4 vikur sem ég man uppá hvern einasta dag hvað mig dreymdi.

Núna til dæmis er drauma tímabilið hjá mér, og eru þetta bara rugl draumar, dreymdi um daginn dreymdi mig til dæmis að það væri búið að klessa á bílinn minn, afturljósið bílstjóramegin og hurðin aftur í beyglaðist, mig dreymdi að Hulda vinkona væri að skilja við hann Gulla sinn (maðurinn hennar) ég girnist hann samt alls ekkert þannig að ég get ekki þýtt hann þannig! Hulda kom líka að skoða nýja leikskólann sem ég var að byrja að vinna á í draumnum, ég hef alls ekki í hyggju að skipta um vinnu. Sigurþór vinur minn og Margrét kærastan hans voru að rífast og hann sagði mér í draumnum að hann væri óhamingjusamur! Hann er það sko alls ekkert, ég spurði hann daginn eftir. Um daginn dreymdi mig að öll þríhjólin sem eru á leikskólanum mínum væru brotin og ónýt á Hamarsskólalóðinni (grunnskóli) og að samstarfskonurnar mínar nenntu ekki að týna þau saman inn í dótaskúr. Síðan var ég eitthvað að brasa í skólanum. Kannski á ég bara eftir að kynnast einhverjum grunnskólakennara! Síðan dreymdi mig að strákur sem ég þekki væri hættur að þjálfa handboltalið og það var einhver sæt tælensk stelpa komin í staðinn fyrir hann. Þannig að mér hlakkar bara doldið mikið til að fara að sofa á kvöldin, er svo spennt að fá að vita hvað mér dreymir á nóttinni.


En ef að einhver er klár í að þýða drauma þá má hann alveg reyna að ráða eitthvað í þá, eða að hann getur haft samband við mig.

Kveðja Ragna Kristín


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2009 21:46:47 / ragnakj

Frá áramótum!


Jæja er ekki komin tími til að blogga? Þetta er nú búið að vera meira jólafríið frá netinu. En nú er bara kaldur hversdagleikinn tekinn við með allri sinni dýrð, hehe ég hafði það ofsalega gott um jólin, át á mig gat marga daga í röð eins og flestir aðrir íslendingar.  Ég var reyndar ekkert mjög öflug á djamminu en átti mín móment eins og ég kýs að kalla það, trúnóin voru nokkur og karlarnir voru mis fríðir sem sóttust í mig en förum ekkert nánar samt í það. Ég skellti mér á 2 dansiböll, annað var með SSSól og hitt var með Vinum Vors og Blóma og hitti ég á báðum böllunum mikið af fólki sem ég sé sjaldan, brott fluttir eyjamenn og konur, ég tók nokkra snúninga á dansgólfinu bæði böllinn en stóð þar dans við mann samstarfskonu minnar uppúr. :lol: Hann dansar ekkert smá vel, hann dansar gömludansana og finnst gaman að snúa konunni í hring sem hann dansar við. Við vorum búinn að æfa okkur smá nokkrum dögum áður en á ballið fórum, en þá var ég alls gáð og taldi mig vera nokkuð góða í dansa við hann. Ég var reyndar búin að fá mér aðeins of mikið  í tánna þarna á ballinu að þegar hann snéri mér í enn einn hringinn þá missti ég jafnvægið þannig að ég datt á gólfið sem var fullt af glerbrotum og slasaði mig á hægri hendi og fæti. :^) Það blæddi svo mikið úr hendinni að ég þurfti að fá 2 plástra á hana og ég reif gat á sokkabuxurnar mínar og þurfti að fá annan plástur á hægra hnéð. Þannig að takk fyrir það ég verð með ör á hnénu það sem eftir er ævinnar minnar! hehe en ég sé samt ekkert eftir þessum dansi, ég á sko alveg örugglega eftir að dansa meira við hann aftur, bara seinna.

Eftir jólin ákvað ég að fara á námskeiðið Sætar stelpur í Hressó sem er áttaksnámskeið í 8 vikur. Ég var reyndar á því fyrir jólin en datt út vegna veikinda sem stóðu yfir í 6 vikur þannig að  mig langaði að fara aftur og taka þátt í því öllu. Námskeiðið er 2x í viku og er rosalega skemmtilegt, hina 2 daganna fer ég í hjólatíma klukkan 6 á morgnanna og hefur það gengið vel hingað til að vakana svona snemma, síðan geng ég  nokkra kílómetra um helgar, ef ég nenni, það á sko að gera sig fína fyrir sumarið og jólin. Alltaf að setja sér markmið sem maður getur náð en ég ætla ekkert að segja hvaða ár ég ætla að verða fín, hvort það verði þetta árið eða næsta eða bara þar næsta?

Þessa daganna hef ég verið að hlusta mikið á Vilhjálm Vilhjálmsson og þá helst lagið hans sem heitir "Ó mín kæra" og er á plötunni við eigum samleið með honum. Alla veganna er þetta lag mikið í uppáhaldi hjá mér núna þessa daganna en getur þá einhver sagt mér sem hefur meira vit á þessu, er þetta lag með Vilhjálmi íslenska þýðingin af lagi "Unchained Melody" sem var svo frægt úr myndinni Ghost, lagið úr Ghost er hérna á slóðinni! :p Ég fan því miður ekki lagið á netinu með Vilhjálmi en þið verðið bara að grafa það upp einhvers staðar og finna út úr því. Er viss um að Sigmar frændi viti hvort þetta sé sama lagið? :)

http://www.youtube.com/watch?v=oKDqDGs6j0I

Kveðja Ragna Kristín


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 21:18:08 / ragnakj

Reykjavíkurferðin mikla í nóvember

Jæja þá hef ég loksins tíma til þess að skella inn smá fréttum af mér. Ég skellti mér til Reykjavíkur 20. nóvember síðastliðin, ferðin byrjaði ekkert sérstaklega vel, brjálaður veltingur með Herjólfi, skafrenningur og hálka í þrengslunum, ég keyrði á eftir bróðir mínum sem var by the way á sumardekkjunum alla leið í bæinn og vorum við ekki komin til Reykjavíkur fyrr en um 8 leytið vegna þess að við keyrðum á  milli 50 og 60 km/hraða alla leiðina. Ekki það að mér lá eitthvað á til Reykjavíkur.


Erindið mitt til Reykjavíkur var hin árlega jóla-verslunarleiðangur og jú síðan var bekkurinn með í Kennó búin að ákveða að hittast á föstudagskvöldið, ákvað ég því að slá þessum tveimur ferðum saman og taka mér sumarfrí í vinnunni á föstudeginum og skellti mér á fimmtudeginum með Herjólfi. Ég hefði nú alveg svo sem getað farið bara á föstudagsmorginum, ég meina búðirnar í Reykjavík opna ekki fyrr en klukkan 11. En alla veganna ég verslaði allt allt of mikið, og allt allt of mikið af óþarfa drasli og á mánudeginum þegar ég fór yfir það sem ég hafði eytt þá lá við að ég fengi taugaáfall yfir stöðunni á fjármálunum hjá mér. En ég gat huggað mig á því að ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar!


Já í Reykjavík fór ég í heimsókn upp á Skálatúnsheimilið, hitti þar bæði gamla starfsmenn sem og heimilisfólk, eyddi föstudeginum mest megnis í búðum (Smáralind, Ikea, Húsasmiðjunni, Rúmfatalagerinn, Ilva,og  Max raftæki), á föstudagskvöldið ætlaði ég að gera heiðarlega tilraun til þess að fara að horfa á frænku mína spila handbolta í hafnafirði en þegar ég sá hvernig inngangurinn inn í Kaplakrika var (kringum heilan fótboltavöll) þá ákvað ég að sleppa því þar sem ég var jú komin í pæjudressið og andliðið fagra var komið á mig, úti var dimmt, snjókoma og stiningskaldi og ég á hælum.  Ætlaði ekki að fara fótbrjóta mig, en Ragnheiður ég horfi bara seinna á þig spila handbolta. :lol:


Ég fór því beinustu leið í miðbæ Reykjavíkur heim til Sveinlaugar, í partýið mikla. Það var geðveikt gaman að hitta allar stelpurnar sem voru með mér og heyra hvernig það er á öðrum leikskólum, takk fyrir frábært kvöld stelpur. ;) Hefði sko alls ekki viljað missa af því. Ákvað reyndar að vera edrú í partýinu svo að ég gæti vaknað snemma og byrjað að versla, er þetta sýki eða hvað?


En á laugardeginum var einmitt skroppið á Laugarveginn, Kringluna, Smáralind og Bónus. Síðan var drifið sig upp í Árbæ dressað sig fyrir kvöldið og drifið sig í matarboð til Hafþórs bróðir og Lindu, kærustu hans. Þar vantaði sko ekki veitingar, humar í forrétt og kjúklingur í aðalrétt, hvítvín í eftirrétt og fyllerí um kvöldið. Markmiðið var að enda niður í bæ og jafnvel að hözla smá, uuuuuhhh við skulum orða það þannig að markmiðið tókst! Sunnudeginum var að mestu eytt í þynnku en ég skrapp aðeins í dýraríkið og keypti 5 fiska í fiskabúrið á leikskólanum mínum. Sem er nú ekki frásögu færandi en að eftir er 1 fiskur af þessum 5 sem ég keypti. Helvítis þríhyrningar fiskurinn sem hefur átt heima í búrinu síðan það var keypt hefur étið 4 fiska og í dag þá fékk ég algjörlega nóg af honum og henti honum í klósettið og sturtaði niður. Hann lagði hin fiskinn minn (þennan eina sem eftir er) í einelti og hinir 3 sem eru í búrinu þeir hjálpuðu til. Ef að þeir (þessir 3) verða ekki góðir við fiskana sem einn á deildinni hjá mér er að fara gefa okkur á morgun þá enda þeir líka ofan í klósettinu, ég þoli ekki svona pöddur! :^)  (sem betur fer eru þetta nú bara fiskar en ekki börn) ;) Ég kom síðan heima á sunnudagskvöldinu og ferðin gekk vel, síðan var bara tekið taugaáfall á þetta á mánudeginum en ég er alveg búin að jafna mig á því, kemst yfir þetta í janúar, þegar loka greiðslan á vísakortinu kemur. Ferðin var jú mest megnis í boði Vísa kortsins, verst að maður þarf að borga það til baka!:cry: style="font-family: Times New Roman;" />

En bless í bili Ragna Kristín
  

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 20:23:23 / ragnakj

Sjéntilmaðurinn minn! Eða hann var minn...!


Mig langar að deila smá sögu með ykkur sem er reyndar saga sem ég er að upplifa einmitt núna. Ég var búin að segja ykkur frá sjéntilmanninum sem fylgdi mér heim alla þjóðhátíðina og er besti strákur sem ég hef kynnst, á tímabili fannst mér hann of góður fyrir mig. Við skulum kalla hann Aron, hann heitir það samt alls ekki. :)


En alla veganna við höfum verið í símasambandi alveg síðan þá. Þegar ég sá Aron fyrst ætlaði ég aldrei að gefa honum séns, ég viðurkenni það fúslega, bæði það að hann er 5 árum yngri en ég og ég var með ákveðna fordóma í garð hans sem ég kýs að upplýsa ekki hér. :s Ég hitti Kristínu Hartmanns vinkonu mína, á danspallinum þar sem við vorum, og hún sagði „Ragna, gefðu Aroni séns, þú tapar ekkert á því, hættu þessu kjaftæði (fordómunum) og aldurs muninum, ástin spyr ekki um aldur“. Það gladdi mig ótrúlega mikið að hún skildi stappa í mig stálinu, því það var einmitt það sem ég þurfti. (Á það til að dæma of fljótt og ég er með alltof miklar kröfur gagnvart strákum, ef þeir uppfylla ekki kröfurnar mínar þá vil ég yfirleitt ekkert með þá hafa. Það getur verið gott en einnig mjög slæmt, sérstaklega ef það eru góðir strákar þar á ferð). Þannig að ég ákvað að gefa Aroni séns, sé svo sem ekkert eftir því. ;)


Strax eftir þjóðhátíðina vorum við í miklu sambandi, bæði sms og símabandi, þá aðallega hann sem byrjaði að senda sms og hann sem hringdi. Á tímabili fannst mér allt þetta of mikið og einhvern vegin of gott til þess að vera satt. Aron keypti meira að segja inneign í símann minn meðal annars til þess að við gætum haldið áfram að tala saman það kvöld, hvernig sem hann fór að því. Trúið mér, það hefur enginn strákur sem ég hef kynnst gert, fyrir utan það ég þekkti hann fremur lítið þegar Aron tók upp á þessu, segir manni bara hversu góður hann er. :) En alltaf hugsaði ég, hvað ertu að gera og hvað ætlar þú með hann? 8|


Síðan kom menningarnótt í Reykjavík og þar sem ég komst ekki í fyrra var alltaf planið að fara þetta árið. Var ég þó tvístígandi með það að fara en hugsaði að þetta gæfi mér tækifæri á að sjá hvað ég ætlaði mér með Aron, og hvað ég vildi = kynnast honum betur. Þannig á menningarnóttina fór ég, gisti hjá honum og líkaði bara nokkuð vel. Á ég nokkrar góðar minningar úr þeirri ferð sem ég gleymi seint en ætla ekkert að láta fylgja hér samt. Takk fyrir það Aron. :) Við ræddum ýmislegt þá helgi og ég var voðalega fegin að heyra að hann væri ekki að leita beint af neinu sambandi, því ég vissi hvortið er ekkert hvað ég vildi. Eftir þessa helgi var ég samt engu nær hvað ég ætlaði mér með hann og það þótti mér verra. Mér fannst einhvern vegin að ég ætti að vera hrifin af honum af því að hann væri svo góður við mig, en fann samt einhvern veginn lítið í hjarta mínu. :( Ég hefði sennilega átt að enda þetta þá en það var samt eitthvað sem sagði mér að slíta þessu ekki. Kannski var það forvitnin ein að slíta þessu ekki, eða jafnvel ánægjan ein að vita að einhver strákur hugsaði þannig til mín, ég veit það ekki. :$


Við héldum áfram að vera í sms og símasambandi og byrjaði ég svolítið að senda af fyrrabragði sms til hans, ég er búin að fara 3x til Reykjavíkur síðan þá vegna veikinda og hef hitt hann eitthvað smá í öll skiptin, auk þess þá kom hann hingað á handboltamót og gat hitt mig í góða 2 klukkutíma sem við áttum saman hérna heima. :p

Síðan er það svo eins og við vitum að öll ævintýri enda einhvern tíman og ekki endilega alltaf eins og við myndum vilja það, þannig er það alla veganna hjá mér. :frown: Síðan núna um miðjan október þá hefur sms og símasamband algjörlega verið í mínum höndum, ég ákvað því að prófa um daginn að senda ekkert sms í von auðvitað að hann myndi senda mér en úr því að ég sleppti því gerðist ekkert.:^) Þá fóru viðvörunarbjöllur að hringja í hausnum á mér, ef hann hefur ekki samband þá er hann ekki nógu hrifin af þér! :!: Þannig að ég ákvað að gera smá tilraunir á Aroni og prófa að senda ekkert sms og athuga hvenær ég fengi eitthvað frá honum. Ég gat beðið í viku en þá fékk ég nóg og ákvað að opna mig fyrir honum í von um að eitthvað myndi gerast. Í þessa viku sem við höfðum ekkert samband áttaði ég mig á að ég var að falla fyrir honum, ég fell ekki svo auðveldlega fyrir strákum en þegar ég fell þá verður það svo sjúklega mikið. :whut: Ég sagði Aroni frá þessu en spurði hann jafnframt að því hvort að áhuginn hans hefði minnkað og hann svaraði því játandi en sagði jafnframt að honum fyndist fjarlægði gera okkur þetta erfitt fyrir. Jújú auðvitað er það svo að hún setur pínulítið strik í reikninginn en svo er jú auðvitað hægt að leggja á sig smá fjarlægð ef að áhugi er fyrir því, við vissum af fjarlægðinni frá upphafi! :^) En allt í lagi hann þarf alls ekkert að gefa mér einhverjar aðrar ástæður fyrir þessu áhugaleysi hans, það sem mér finnst verst er að hann er sjálfsagt búinn að vera áhugalaus í einhvern tíma, af hverju sagði hann mér þetta ekki strax? :^) Þá væri þetta alla veganna ekki svona sárt núna.:cry: Þetta sannar bara einfaldlega að allir strákar eru eins, sama hversu góðir þeir eru, þeir koma sér allir undan því að særa stelpur og taka alltaf auðveldustu leiðina að hlutum sem þeir vilja helst ekki ræða og hún er að stelpan á að átta sig á hlutunum og ræðan málin! Eins og í öllum sögum má læra eitthvað af boðskapnum og þetta kennir mér að ef ég er ekki viss um strákinn strax þá á ég bara að slíta þessu strax en ekki að vera að draga þetta eitthvað á langinn og sitja sjálf eftir í sorg og tárum eins og núna. :^)


Ég reyndi eins og ég gat að gefa allt mitt í þetta, og þó að ég hafi ekki fundið neina tilfinningu til Arons strax þá var auðvitað eitthvað þarna þó að það sé ekki hægt að skilgreina það sem ást, hrifinn eða skotinn. Ég meina ef að mér hefði fundist hann eitthvað uppáþrengjandi þá hefði ég auðvitað sliti þessu strax. Hins vegar má alveg geta þess að við Aron vorum aldrei saman, þetta komst ekki svo langt, en samt aðeins meira en vinir. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og eru það sannarlega orð að sönnu, ekki það að ég átti Aron aldrei þannig að ég missti hann að sjálfsögðu ekkert. Ég áttaði mig kannski alltof seint á þessu öllu. Engu að síður er Aron algjör gullmoli og verður stelpan sem „hreppir hann“ ótrúlega heppin, ég fer ekkert ofan af því, þó að jú hann hefði getað breytt öðruvísi, með því að segja mér þetta strax og hann fann fyrir áhugaleysinu, en er ekki líka alltaf hægt að dæma? Þetta lítur kannski út eins og ég hafi eitthvað verið að nota hann en það er alls ekki þannig, eða mér finnst það alla veganna ekki.


Takk fyrir allt Aron og megir þú vel lifa.;)

Lag dagsins: Alone með hljómsveitinni Heart
http://www.youtube.com/watch?v=jxfdDrKO8uM

Kveðja Ragna Kristín alone


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 20:13:53 / ragnakj

Árekstur!


Ég lenti í árekstri í ágúst. Það var bakkað á bílinn, sem var kyrrstæður, á bílastæðinu fyrir utan vinnunni hjá mér, beint framan á hann. Síðan þegar búið var að gera tjónaskýrslu, meta hann, taka af honum myndir og skoða tjónið, sko verkstæðiskarlarnir þá varð ég fyrir því óláni 9 dögum seinna að það var aftur bakkað á mig. Reyndar lán í óláni að tjónið skildi vera á sama stað og fyrra tjónið. Ég sat einmitt inn í bílnum þegar þetta gerðist og verð ég að segja að þetta er nú ekkert ofsalega þægilegt. Ég sá alveg þegar húddið lyftist upp. Þegar ég var búin að gera aðra tjónaskýrslu þá fór ég með hann á verkstæði, maðurinn þar hló af þessu og hafði aldrei vitað til þess að svona hefði gerst, sko að lenda í 2 árekstrum á 9 dögum og tjónið hafi verið á sama stað í bæði skiptin. Það skal taka fram að ég var sko í rétti í bæði skiptinn. En því sem öllu máli skiptir þá sem betur fer slasaðist enginn í báðum árekstrunum, það er jú fyrir öllu. Læt bara myndirnar tala sínu máli.

Kveðja
Ragna Kristín 

















En það er búið að laga bílinn minn :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 18:24:30 / ragnakj

Myndir arg....


Þetta er ekki að heppnast arg......helv. myndir  :^)

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 21:09:41 / ragnakj

Sunnudagurinn 3. ágúst


Vaknað frekar seint og var tilkynnt að ég væri að fara í matarboð hálftíma áður en matarboðið átti að hefjast.:haha: Þannig að ég hentist til og klæddi mig, skutlaði sjéntilmanninum til vina sinna og gerði mig klára í matarboðið. Þegar ég var á leið í matarboðið var orðin svo lint í einu dekkinu á bílnum að ég ákvað að fara með Sigmar frænda og láta hann pumpa í dekkið hjá mér. það var nú meira djókið. :^) Við brunuðum niður í Klett, þar beið ég og beið til þess að fá lykilinn af loftinu. Þegar röðin loksins kom að mér þá var mér sagt að þau væru ekki með neitt loft. Þannig að þá fórum við í Tvistinn, þar var loftið eitthvað bilað og ég get svo svarið fyrir það að þar tók það meira loft úr dekkinu. Ég var skíthrædd um að við þyrftum að skipta um dekk. En ég tók sénsinn og við brunuðum niður í Skýli þar sem var þetta líka fína loft, en græjan var of flókinn fyrir okkur Sigmar sem botnuðum ekkert í þessu. :!: En fegnum hjálp frá öllum stelpunum sem vinna í skýlinu. Þetta hafðist á endanum og komum við bara 30 mín of seint í matarboðið. :^)


Þegar búið var að borða þá var ákveðið að bruna heim og fara að finna sig til í dalinn. Ég og Linda (mákona) ákváðum að taka bara bekkjabíl í dalinn, það eru snilldar bílar. Fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá eru þetta vörubílar og flutningabílar hérna í eyjum sem breyta bílunum og setja bekki í þá og síðan er í loftinu stöng til þess að halda sér í ef sætin eru öll upptekinn. Tónlistinn ómar úr þeim og stundum er svo mikið stemming að söngurinn í fólkinu sem eru í bílnum ómar í 4 metra fjarlægð. Þetta er því eins konar strætó nema helmingi skemmtilegri. Þetta er eitt af aðalmerkjum þjóðhátíðarinnar ásamt flugveldasýningunni, brekkusöngnum og brennunni.

En nóg af því þegar í dalinn var komið var skundað upp í brekku sem var reyndar orðin svolítið drullug eftir allt fólkið sem var í brekkunni kvöldinu áður. Það er mjög gott að finna sér gott sæti áður en brekkusöngurinn byrjar, þá eru yfirleitt allir í brekkunni og þetta árið voru þar 14 þúsund manns. Bubbi hitað upp fyrir brekkusönginn og verð ég nú að segja að hann var hreint út sagt ömurlegur. Hann var bara fúll og leiðinlegur. Síðan var það Árni Jonsen sem stýrði brekkusöngnum og verð ég nú líka að segja þrátt fyrir að vera sjálfstæðismaður eins og hann, þá var hann hræðilegur líka. Hann var að reyna að taka „Lífið er yndislegt“ og það var engan vegin að henta honum, og ekki heldur „Stál og hnífur“ síðan tók hann sum lög 2x á meðan hann tók sum lög aldrei. Virtist heldur ekki vera nógu vel undirbúinn undir þetta. En það er samt alltaf jafn gaman (æðislegt) þegar brekkusöngurinn er búinn og það er spilað lagið „Lífið er yndislegt“ og kveikt er á 134 blisum sem lýsa upp dalinn og allir syngja með. Ég get svo svarið fyrir það að þetta árið féllu meira að segja nokkur tár á þeim tímapunkti, veit ekki alveg af hverju.

Þegar allt þetta var búið hélt Páll Óskar uppi fjörinu og ég verð að segja að hann er æðilegur. Vá hvað það er gaman að vera þar sem hann er. Það var svo mikið stuð hjá honum og gaman að sjá hann og hvernig hann var upp á sviðinu að ég held að ég hafi verið alveg dolfallinn fyrir honum. Verst að hann skuli vera hommi :whut: Þrátt fyrir úrhellis rigningu voru flestir á dansgólfinu að horfa á Palla. Fljótlega eftir að Palli var búinn að ljúka sér af, sko á sviðinu hitti ég sjéntilmanninn minn. Við gengum nokkra hringi um dalinn, sátum í drullugu brekkunni, reyndar á teppi sem við fundum í brekkunni og horfðum á fullt af fólki renna sér í drullugri brekkunni. Já og fyrir þá sem ekki vita það þá er aðal sportið á þjóðhátíðinni á mánudagsmorgninum að fara efst upp í brekku og renna sér niður alla brekkuna sem er oftast ein drulla. Ég hef samt aldrei prófað það og langar ekki til þess að prófa það, ekki miða við hvernig fólk kemur út úr þessu. En ég efast samt ekki um að þetta sé gaman. :lol:

Þar sem ég var orðin svo blaut, sko rigningar blaut, þá var ég ekkert mjög lengi á sunnudeginum. Ég var tilbúinn að fara heim um klukkan 3 en píndi mig til 4:30 þar sem þetta var jú síðasta kvöldið. Ég var reyndar fyrst heim af öllum sem búa með mér. Aftur fékk ég fylgd frá fylgdarþjónustu sjéntilmannsins og fékk hann því aftur að vera hjá mér.

Við vöknuðum síðan saman á mánudeginum og eyddi ég öllum mánudeginum í þynnku og leti og safnaði orku fyrir átök vikunnar. Ég byrjaði síðan að vinna á þriðjudeginum eftir 3 vikna sumarfrí.

Kveðja
Ragna Kristín


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.09.2008 11:59:09 / ragnakj

Laugardagurinn 2. ágúst


Vaknaði frekar seint og skutlaði sjéntilmanninum heim eða þar sem hann gisti. Og gleymdi aðal atriðinu og það er að fá símanúmerið hans! Halló hvernig er það hægt? Hverjar eru líkurnar á að ég finni hann aftur í dalnum þegar 12 þúsund manns eru þar saman komnir???? :^)


Ég fór með Hafþóri bróðir, Lindu (mákonu) og Sigmari frænda á Topppizzu eftir að hafa skutlað sjéntilmanninum. Þar fengum við okkur pizzu í kvöldmatinn. Síðan gerðum við okkur klár í dalinn, þar sem við fórum svo snemma ákvað mamma að senda okkur í dalinn með nokkra kaffibrúsa og eitthvað dót í tjaldið. Á leið okkar niðri í dal varð Krónuinnkaupakerra á vegi okkar og fannst okkur tilvalið að nýta okkur hana undir allan farangurinn og áfengið sem við vorum með. Löggan keyrði framhjá okkur svona 2x en gerði samt ekkert þegar hún sá okkur vera með innkaupakerruna. Þetta var aðal ferðamátin í eyjum yfir þjóðhátíðina, enda líka ekkert smá þægilegt að ýta bara kerrunni á undan sér, þó svo að það hafi verið nokkrar brekkurnar. Ég held án gríns að það hafi verið 3 kerrur eftir í allri Krónunni á þriðjudeginum eftir þjóðhátíðina, allar hinar voru á víð og dreif um bæinn.

Þegar í dalinn var komið voru Arnar, Elín og Ingimar Óli komin upp í brekkuna ásamt 8 þúsunda öðrum gestum. Spennan var í algleymingi sérstaklega þar sem þetta var eina kvöldið sem Elín vinkona ætlaði að djamma. :) Hún var svo mikið að vinna yfir þjóðhátíðina að hún hafði varla tíma til að djamma líka. Þess vegna ætla ég að læra af henni og ætla því aldrei að kaupa mér fyrirtæki sem ég þarf að vinna í yfir þjóðhátíðina. Kaupi mér frekar fyrirtæki sem ég get haft lokað yfir þjóðhátíð, það er að segja ef að ég kaupi mér fyrirtæki, það er samt  alls ekki á stefnu skránni hjá mér en nóg af því. :lol:

Í brekkunni var mikið fjör og að sjálfsögðu mikil gleði og mikið um dýrðir, bara eins og alltaf. Það var hlustað á skemmtikraftanna sem skemmtu mannskapnum, hlaupið reglulega upp í brekku til þess að skvetta úr henni. Merkilegt hvað maður þarf mikið að skvetta þegar maður drekkur. Er því miður ekki með mikla partýblöðru. Þegar flugveldasýningin var búin og líða tók á nóttina þá fór vitleysan að segja til sín já og auðvitað öll uppátækin sem manni dettur í hug að gera! Ég og Elín vorum staddar á stórasviðinu þegar við sáum að það var verið að henda í fólk Durex smokkum. Og hvað haldi þið að Rögnu Kristínu hafi dottið í hug? :$ Jú jú auðvitað að safna smokkunum, þá meina ég sko að fara alveg upp við sviðið og reyna að grípa smokkana og að ná í þá sem duttu á dansgólfið. Oj...þeir voru sko blautir og ógeðslegir en mér datt samt í hug að safna þeim. Þar sem Elín var ekki eins mikið í því og ég þá gat hún sirkað út hvaða smokka var hægt að nota og hvaða smokkar voru ónothæfir, þar sem það hafði komið gat á pakkninguna vegna þess að hún var búin að liggja á dansgólfinu í einhvern tíma. Ég held að ég hafi náð að safna 25 smokkum og þar af voru 17 heilir smokkar. Reyndar áður en við fórum í smokkaleitina þá fann ég sjéntilmanninn sem ég hafði gleymt að fá símanúmerið hjá og það fyrsta sem ég sagði við hann, „má ég fá símanúmerið þitt?“ ;) og held reyndar að það hafi verið það eina sem ég sagði við hann. Auðvitað fékk ég það, fá oftast það sem ég vil!  Síðan hélt leið okkar Elínar að finna Arnar og koma sér að verk og finna þann sem vildi nota alla þessa smokka. :!: Við Elín fundum Arnar  og þá var hann náttúrulega búinn að finna einhvern flugmann handa mér sem var alveg til í að nota alla smokkana með mér ef að mér hefði langað það. :!: En mér langaði það ekki neitt, alla vegann ekki með honum. Ég lenti á einhverju spjalli við einhvern gaur fyrir fram eitthvert tjald og ég var svo ósátt við að hann stal einum smokk af mér. Ég varð alveg brjáluð! Skil samt ekki alveg af hverju, þannig að ég stal blöndunni hans í staðinn og því líkur viðbjóður sem hún var, en samt drakk ég hana! :frown: Ég lærði það reyndar, betra seint en aldrei, að drekka aldrei frá öðrum á þjóðhátíð, maður græðir ekkert á því nema bara að verða ofur drukkinn og það er ekkert sniðugt.

Ég fór líka inn í eitthvert tjald og seldi 3 smokka í 1000 kr. Skil ekki hvernig mér datt það í hug. Var reyndar alveg með smá móral daginn eftir að hafa selt honum smokkana, ég meina ég fékk þá gefist ég átti auðvitað bara að gefa honum 3 smokka, mér hefði ekkert munað um það! enda fóru þeir allir beint í skúffuna heima hjá mér! :þ Eftir mikið spjall, margar ferðir upp í brekku og mikið rugl hafði ég samband við sjéntilmanninn og eyddi síðustu klukkutímunum með honum í dalnum, eða þar til ég var búin að fá nóg og vildi fara heim. Aftur fékk ég fylgd og skaut aftur yfir hann húsaskjóli.

Blessó
Ragna Kristín


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 20:27:06 / ragnakj

Föstudagurinn 1. ágúst


Já það var þjóðhátíðin loksins að byrja. Þrátt fyrir að hafa farið á Húkkaraballið og komi seint heim þá afrekaði ég það að vakna klukkan 10:00 og taka þátt í að tjalda hvítatjaldinu. Og geri aðrir betur. :) Þegar það var búið skeið ég reyndar upp í rúm aftur og svaf í 3 tíma í viðbót. En þegar það var búið þá var ekkert annað en að drífa sig niður í dal og fá kökur og fínerí í nýja hvítatjaldinu okkar. Það smakkaðist mjög vel. Ég horfði á söngvakeppni barna sem var rosalega skemmtileg og voru nokkrir keppendurnir á leikskólanum hjá mér og verð ég nú að viðurkenna að ég fékk nú alveg tár í augun, var sko svo rosalega stolt af þeim. Ég hitti Söndru og Thelmu vinkonur mínar frá Skálatúnsheimilu, þær voru bara í stuði. Æðislegt að hitta þær, hef sko ekki hitt Söndru síðan ég hætti á Skálatúni og það eru sko 2 ár núna í haust. Thelmu reyndar hitti ég frekar óreglulega, hitti hana stundum þegar ég fer í heimsókn á Skálatún, Thelma er mebbla enn þá að vinna þar en Sandra saknaði mín svo að hún ákvað að hætta um svipað leyti og ég hætti....hehehe djók. :)

Á föstudagskvöldinu sat ég upp í brekku með Elínu vinkonu og Ingimar Óla og alla veganna 7 þúsund öðrum gestum. Verð að segja ykkur smá sögu af honum Ingimar Óla og hvað hann er klár strákur einungis 2ja ára að aldri. Þeir sem ekki hafa komið á þjóðhátíð þá verð ég að segja að það er ekkert voðalega gott að vera með barn í vagni upp í brekku. Sérstaklega ekki barn sem farið er að ganga og er að reyna að vera svolítið sjálfstætt. Alla veganna, hann átti að sitja í vagninum upp í brekku en vildi það ekki. Mamma hans ákvað því að taka hann í fangið og setja teppi utan um hann, svo honum yrði ekki kalt, hann vildi það ekki og bað mig um að hjálpa sér. Ég hélt i alvöru að barnið vildi frekar sitja í fanginu hjá mér en móður hans en ég víst misskyldi eitthvað hjá honum, þar sem ég læt nú reyndar allt eftir honum, þegar ég er að passa hann, þá er hann víst alveg búinn að læra það og hann vissi að ég myndi að sjálfsögðu leyfa honum að gera það sem hann vildi ef hann kæmi til mín og viti menn hvað haldi þið að Ragna Kristín hafi gert? ;)Auðvitað lét ég eftir honum og gerði það sem hann vildi. Honum langaði aðvitað að fara á röltið og leika við krakkann í brekkunni sem voru fyrir fram okkur. Ég leyfði það í smástund en síðan gafst ég upp og hann endaði grenjandi ofan í vagninum. Ég gafst reyndar bara upp af því að það var fullt af fullu fólki að ganga fram hjá og fáir að spá í að þarna væri lítið barn á ferð.

Um nóttina þá var ég eitthvað með Elínu vinkonu og Frikka. Frikka var svo kalt á höndunum að ég lániði honum einn vettlinginn minn. Hann hefði viljað fá báða vettlingana mín sem kom ekki til greina að minni hálfu þar sem ég notaði hann undir símann minn, var sko ekki með neinn vasa. Þegar ég var búin að drekka svona 8 bjóra og búin að fara 23 ferðir upp í brekku til þess að pissa og búin að dansa marga hringi og Frikki og Hafþór bróðir búnir að snúa mér í marga hringi á dansgólfinu þá hitti ég einn af vinahópnum í sjéntilmenn. Hann er ekkert smá góður og sætur strákur. :) Ég var með honum það sem eftir lifði næturinnar og hann fylgdi mér síðan heim það kvöld og ég launaði honum með því að skjóta yfir hann húsaskjóli.heheh ;) :lol:

Segi meira seinna
Blessó
Ragna Kristín

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 19:01:38 / ragnakj

Fimmtudagurinn 31. júlí


Jæja þá er það þjóðhátíðin. Ég eyddi fimmtudeginum að mestu í dekri. Fór í litun og plokkun á augabrúnunum og klippingu og litun á hárinu. Maður verður nú að líta vel út þegar það kemur svona mikið af Íslendingum á eyjuna fögru. :)


Í fyrstu ætlaði ég bara að vera róleg heima og fara snemma að sofa og taka þátt í að tjalda hvítatjaldinu snemma á föstudagsmorgninum. En það endaði ekki alveg eins og ég var búin að plana kvöldið. ;) Klukkan rúmlega 23 á staðartíma datt mér í hug að ég hefði bara gaman af því að kíkja aðeins út. Ætlaði að sjálfsögðu ekkert að vera neitt lengi, bara að drekka kannski 3 bjóra og skella mér heim. Ég byrjaði á að fá mér göngutúr til Elínar vinkonu með barnavagn, málið var að systir mín var að passa Ingimar Óla (sonur Elínar) á fimmtudeginum og ég hafði skutlað Elínu og Ingimar Óla heim þegar Elín var búin að vinna. Í staðin fyrir að Arnar (unnusti Elínar og pabbi Ingimars Óla) færi að ná í vagninn heim til mín ákvað ég bara að færa þeim vagninn og þá hafði ég líka eitthvað að gera. Tók með mér 3 bjóra sem ég ætlaði að drekka um kvöldið, mér fannst reyndar ekkert ægilega smart að keyra barnavagni með annarri hendinni og halda á bjór sem ég var að drekka í hinni hendinni. En ég reyndi eftir fremsta megni að fela bjórinn. Á leið minni til Elínar hitti ég konu sem ég spjalla oftast við þegar ég hitti, hún er ein af þeim sem vill hafa allt í hreinu (sem er bara gott) en það fyrsta og reyndar það eina sem hún spurði mig núna að (kallaði reyndar yfir götuna) var „ bíddu er ég búinn að missa af einhverju?“ 8| og benti á vagninn. Ég huxa nú reyndar að ef að ég ætti barn (eða ný búin að eiga barn) þá hefði ég nú sjálfsagt ekki verið með það úti í göngu um klukkan 23 á staðartíma á fimmtudagskvöldi fyrir þjóðhátíð og með bjórinn í annarri hendi. En kannski sá hún ekki bjórinn, það má vel vera.  Á leið minni hitti ég einnig samstarfskonu mína og dóttir hennar sem er reyndar bara 6 ára. Ég lenti á heljarinnar spjalli við þær mæðgur og átti ég fullt í fangi með að fela bjórinn sem ég var að drekka fyrir dóttir samstarfkonu minnar. Málið er að dóttir hennar var á deildinni minni og mér fannst frekar óþægilegt að hitta dótturina með bjór í hendinni. Fannst það ekki smart... en svona er ég bara. Ég gerði í því að halda bjórnum á bak við mig og reyna að fela flöskuna, passaði að drekka ekkert á meðan hún stóð hjá okkur en það kostaði mig það að þegar ég var búinn að tala við þær mæðgur þá var bjórinn algjörlega orðin flatur og mikið meira en það. :^)

Þegar til Elínar kom var brjálað að gera hjá henni, hún var að vinna á símanum hjá leigubílunum hérna í eyjum. Arnar (unnusti Elínar) á 1/3 hlut í leigubílafyrirtækinu, þannig að ég stoppaði ekki lengi hjá þeim það kvöld. 8)

Ég hélt ferð minni áfram og lá leið mín til hennar Kiddu, þar var Linda (mákona) stödd og vildi endilega fá mig til sín, þannig að ég dreif mig. Þar drakk í restina af mínum bjór og Linda vildi endilega að ég fengi mér meiri bjór og gaf mér einn í viðbót eða neyddi mig nánast til þess að drekka annan bjór. Eftir hann var skundað á dansiball, eða nánar til tekið á Húkkaraball, ég ætlaði nú reyndar bara að fara heim en ég mátti það að mig minnir ekki. Þar var voðalega gaman að vanda, fullt af ungu fólki og á tímabili fannst mér þetta of ungt fyrir mig. Skildi á tímabili ekki hvað ég var að gera þarna!Ég var ábyggilega á tímabili með þeim elstu. Á dansgólfinu hitti ég reyndar sæta strákinn frá Kirkjubæjarklaustri sem ég var með á Húkkaraballinu í fyrra. Fyrst þekkti hann mig ekki en ég hjálpaði honum að muna hver ég var, við töluðum í svolítinn tíma saman, svona þegar ég var búinn að týna öllum þeim sem komu með mér á ballið. Hann var bara hress, hann hélt ábyggilega að hann væri komin til Balí, hann og reyndar vinur hans voru berir að ofan á Húkkaraballinu. Mér fannst nú reyndar ekki svo heitt, þrátt fyrir hita.  Ég held að ég hafi verið komin heim um 5 leytið og vaknaði bara nokkuð hress daginn eftir, enda kannski ekki skrítið þar sem lítið var drukkið þetta Húkkaraball. ;)

Segi meira seinna
Blessó
Ragna Kristín


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 18:31:06 / ragnakj

Sumarfríið mikla


Ég fór í sumarfrí 14. júlí og skrapp í smá ferðalag meðal annars til Rvk með mömmu og systir minni. Við fórum fyrst aðeins upp í sveit og ég verð að segja að mér fannst alveg hreint æðislegt að fá að komast inn í fjós og sjá beljur. :) Ég held að ég hafi ekki séð beljur síðan 1995 eða í 13 ár. Ég var mjög mikið í sveit með ömmu og afa þegar ég var yngri og það skemmtilegasta sem ég gerði var að vera í fjósinu. Ég hef ábyggilega verið bóndi í fyrralífi. Ég hef samt alveg farið í sveitina síðan 1995 en þar eru bara engar beljur lengur, við fórum í heimsókn í sveitina sem er rétt hjá minni sveit og þar eru beljur, naut og kálfar. :haha:

Ég hef samt ekkert mikið að segja um þessa ferð okkar nema jú þegar ég ætlaði að fara heim til eyja aftur þá missti ég af rútunni til Þorlákshafnar. Mamma ætlaði að vera lengur í Rvk og ég var einfaldlega ekki að nenna því og ákvað að fara 3 dögum á undan henni. Ég ætlaði bara að taka rútuna til Þorlákshafnar og stóð í þeirri trú um að rútan færi klukkan 11, þegar ég mætti á BSÍ klukkan 10:43 þá var mér sagt að hún hefði verið að keyra út af stæðinu, hún færi 10:40. Síðan hvenær fer hún svona snemma??? :^) En það skipti mig ekki máli ég tók bara rútuna seinna um daginn klukkan 17:50. Kannski var eitthvað að segja mér að ég ætti ekki að vera fara til eyja því að þegar ég kom í Herjólf þá var hálftíma seinkunn á honum. Ég ákvað að fara í koju og splæsti á mig koju með sæng (sem er dýrara) ;) og ætlaði svo að sofa á leiðinni heim en nei, gat með engu móti sofnað :^) og þið getið rétt ímyndað ykkur hvað það er leiðinlegt að vera um borð í Herjólfi svona lengi. Tíminn er svo hryllilega lengi að líða ef maður hefur ekkert að gera. Þess vegna er svo gott að sofa bara þá er tíminn svo fljótur að líða. ;) En á endanum komst ég til eyja og alla leið heim þrátt fyrir að hafa misst af fyrri rútunni og seinkunn á Herjólfsferðinni. 8)

Haldið ykkur! Ég er að fara sauma saman texta um þjóðhátíðina!
Bið að heilsa í bili
Sjáumst
Ragna Kristín 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.08.2008 19:00:30 / ragnakj

Heimaklettur


já ég afrekaði það að ganga upp á heimaklett á goslokarafmæli Vestmannaeyja. Ég hef aldrei farið upp á Heimaklett áður og var þetta því mikil upplifun fyrir mig. Ætla bara að láta myndirnar tala sínu máli.

 
Sumari2008063.jpg heimaklettur picture by bibba-jons

Sumari2008064.jpg heimaklettur1 picture by bibba-jons

Sumari2008065.jpg picture by bibba-jons


Sumari2008067.jpg picture by bibba-jons

Sumari2008069.jpg picture by bibba-jons

Sumari2008083.jpg picture by bibba-jons

Sumari2008081.jpg picture by bibba-jons


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2008 20:58:26 / ragnakj

Já komi þið sæl og blessuð!


Jæja þá er ég búin að taka mér mjög langt sumarfrí frá blogg heiminum þetta árið. Er svona að velta því fyrir mér að koma með smá pistla um það sem ég hef verið að gera í sumar sem er nú svo sem ekkert voðalega mikið ;)

Ég fór og hitti vinkonur mínar úr Kennó í byrjun sumar. Við vorum 4 stelpur sem héngum alltaf saman í Kennó, gerðum verkefni saman, og höfum haft svolítið samband við hverja aðra og alltaf hist einu sinni yfir sumarið allar 4, eða ætlað að gera það. Við höfum reyndar aldrei hist allar 4 en höfum samt alltaf planað hitting á hverju sumri. Það er kannski líka pínu erfitt að hittast allar þar sem við búum má segja allar í sitthvoru landinu! Hulda býr í Californíu, Sigga býr í Svíþjóð, Berglind býr á Húsavík eða á Íslandi og ég bý í Vestmannaeyjum sem reyndar tilheyrir Íslandi. :lol:

Hulda vinkona ákvað að halda stóra afmælisveislu og brúðkaupsafmæli upp í sveit hjá tengda fólki sínu á suðurlandinu og ákvað ég og Sigga að fara þangað bílandi og sofa þar í tjaldi eina nótt úti í garði. Það var alveg ofsalega gaman, verst að Berglind skyldi ekki komast með litlu snúlluna sína. Berglind eignaðist litla snúllu, Karólínu Ösp, einhvern tíman í fyrra, man ekki alveg hvenær og ég hef því miður ekki séð barnið. En ég þarf að fara gera eitthvað í því! Berglind var semsagt með flensu þegar afmælið var og komst því ekki til þess að hitta okkur. Ég vona Berglind mín að þú sér ekki lengur með flensuna! Hehe. :lol:

Já afmælisveislan var hreint frábær, það var gott að borða, flottur varðeldur, æðislegir hestar, flott gítarspil, og tala nú ekki um sæta íslenska sveita stráka, já og svín. Sko alvöru svín og pínu litlir nýfæddir grísir, sveitabærinn sem við vorum á sér um stórt og mikið svínabú. Ég fékk að vita allt um svín og hvernig umhirðan á að vera. Það kom mér reyndar mikið á óvart hversu mikið hreinlæti er í kringum þessi sóðalegu skepnur. En það er allt út af því að þetta eru svín sem eingöngu eru ræktuð til manneldis... ég fékk að fara inn í svínabúið og fylgjast með morgunverkum bóndans og það var upplifun út af fyrir sig.

En nóg af því. Það var samt lítið sofið þessa nótt þar sem ég fór jú með bóndanum að gera morgunverkin hjá svínunum og þegar ég kom til baka voru allir gestirnir komnir í sundlaugarpartý, já þau í sveitinni eru með sundlaug í garðinum hjá sér. Ég reyndar nennti ekki í sundlaugin og ætlaði að reyna að fara sofa, það gekk frekar erfiðlega þar sem það var náttúrulega ferlegt fjör hjá sundlauginni og þegar fólkið fór allt upp úr þá tók bara annað við, það var hrossagaukur sem ekki gat sofið og gargaði hann hástöfum frá klukkan 5 um morgunninn til klukkan 9, en þá þurfti ég einmitt að vakna þar sem ég þurfti að fara með Herjólfi klukkan 12. :^) En þetta var samt að öllu leyti vel heppnað og skemmtilegt partý.

Kem með meira fljótlega

Blessó
Ragna Kristín


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 17:23:57 / ragnakj

Undan farinn mánuðinn

 

Vá hvað tíminn er fljótur að líða. Það er búið að vera allt vitlaust að gera hjá mér undan farinn mánuðinn.

Ég er búin að fara 2 ferðir til Rvk. Önnur ferðinn fór ég að útrétta mig, ég fór til tannlæknis, ég fór með bílinn í skoðunn og ég fór og raðaði lokaverkefninu okkar Siggu upp. Málið er að við erum að selja lokaverkefnið okkar og bóksalan í Kennó prentar hana út, þar sem hún er svo löng þá þurfti ég að raða henni upp fyrir þá. Og síðan að sjálfsögðu stóðst ég ekki mátið og skrapp í nokkrar búðirnar. Þar sem ég hef ekki farið til rvk síðan í nóvember síðast þá missti ég mig aðeins (vægast sagt) og má segja að ferðin hafi meira og minna verið kostuð af Vísa. Meira hvað ég þarf alltaf að vera að kaupa einhvern óþarfa þegar ég er í Rvk. Ég er ein af þeim sem kaupi bara allt sem ég sé og allt sem ég þarf ekki. En reyndar þá hafði ég meiri áhuga á að kaupa eitthvað í búið heldur en á sjálfan mig.

Seinni Rvk ferðin fór ég einungs til þess að fara að sjá Ladda í Borgarleikhúsinu og að horfa á litlu systir keppa í handbolta. Jú og auðvitað tókst mér að kaupa mér skó fyrir 15 þús krónur, en ekki hvað. Skil það hreinlega ekki, ég fór inn í kringluna og ætlaði bara aðeins að skoða, ég hafði 30 mín til þess að skoða ( á milli leikja hjá systur minni) og þegar ég var búin að vera þarna inni í 5 mín var ég stax búin að kaupa skó. Hvernig er þetta hægt?

En þrátt fyrir að ver að drukkna í skuldum og alls konar óþarfa dóti þá held ég að ég muni lifa þetta af, þyrfti kannski að fá mér bara smá auka vinnu. Vitiði um einhverja handa mér?

Viti þið bara hvað? Haldiði ekki að strákurinn sem ég er ástfanginn af hafi ekki hringt í mig þegar ég var í fyrri Rvk ferðinni! Ég veit að við erum reyndar að tala um alveg 1 og ½ mánuði síðar en ég meina hann hringdi þó! Og hann sagði þetta líka ljómandi fínt. Vakti mig reyndar um miðja nótt en talaði alls ekkert lengi við mig en í svona 10 mín eða svo. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var langt uppi í skýjunum eftir að hafa heyrt í honum. :lol: Síðan ákvað ég að slá á þráðin hjá honum í síðustu viku, sko út á sjó, en þá hafði hann engan tíma til þess að tala við mig og mér fannst eins og honum langaði ekkert að tala við mig. Þannig að ég ákvað þá bara að ef hann vildi tala eitthvað við mig þá skyldi hann hafa samband. Og ég bíð og bíð og ekkert gerist! J ég meina ef hann skilur ekki hvað ég er góð stelpa þá getur hann bara hoppað upp í ....já ég ætla ekkert að segja það hérna! :^)

Ég fór í óvissuferð á miðvikudaginn síðasta með vinnunni og það var alveg hreint ógeðslega gaman, fullt af áfengi og farið í rútu og verið í keppni hér og þar um bæinn. Við fórum á flugvöllinn í actionari, niður á dekkjaverkstæði að skipta um dekk, spila boccia á leikskólanum, bursta tennur hjá Heimi tannlækni, búa til ís í Klettinum og betla álegg ofan á brauð. Allt voru þetta liða-keppni og í verðlaun var ógeðslegt kremkex sem mitt lið hafði lítinn áhuga á að fá. 

Ég átti afmæli í gær. Varð sko 20 og eitthvað....við skulum ekkert ræða það neitt frekar hérna. Ég bauð nokkrum vinum mínum í kaffiboð í gærdag og átti góðan dag.

 

Ætla ekkert að hafa þetta neitt lengra.

See you

Love you

bye


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 20:33:10 / ragnakj

Ástfangin eða ekki?


Ég hef verið að velta þessu fyrir mér, er hægt að verða ástfanginn af einhverjum sem maður þekkir ekki neitt og er hægt að verða ástfanginn af einhverjum á einum degi?

Þannig er mál með vexti, helgina sem júrúvísionlagið var valið fór ég að djamma, og hitti ég strák hérna í eyjum á djamminu. Strákurinn er ekki frá eyjum, var á sjó á bát sem er reyndar í eigu Ísfélagsins. Við eyddum nokkrum klukkutímum saman, eða þar til hann þurfti að fara að vinna. Eftir að hann fór frá mér, fattaði ég að ég gleymdi að biðja um símanúmerið hans. Þannig að ég spurði Frikka, vin minn, hvernig ég gæti reddað númerinu hans. Hann var að sjálfsögðu með brilljant lausn á hlutunum, og sagði mér að hringja bara niður í bát! Sem ég reyndar þorði ekki fyrir mitt litla líf en dó ekki ráðalaus og lét annan strák gera það fyrir mig. Ég var fljót að senda honum sms og viti menn, hann svaraði mér! Hann fór síðan heim til sín á þriðjudagsmorgninum held ég vegna loðnubanns. Síðan var loðnubanninu aflétt og hann kom aftur til eyja og fór á sjó (báturinn var hérna í eyjum).

Helgina fyrir páska voru þeir að landa hérna í eyjum og ganga frá bátnum. Ég var á djamminu og hitti einn úr áhöfninni fyrir tilviljun. Einhver gaur sem ég þekkti ekki neitt, hann var að spjalla við Kristínu vinkonu. Hann manaði mig í að fara um borð í bátinn og gaf mér nákvæma lýsingu á hvar hann væri sofandi. Glætan að ég hefði þorað því, ekki séns. En ég hafði allt kvöldið til þess að mana mig upp í þetta og á endanum tókst það, ég ákvað að fara niður í bát og að minnsta kosti spyrja eftir honum. Hversu klikkað er það? Ég sé samt alls ekkert eftir því, mér var reyndar sagt að hann væri sofandi. En hefði ég ekki farið þá myndi ég örugglega sjá eftir því!

Ég heyrði eiginlega ekkert meira í honum fyrir utan þessi sms sem voru fyrir 4 vikum. Nema jú eftir að ég gerði heiðarlega tilraun til þess að fara niður í bát til hans, þá hringdi síminn minn á mánudagsmorgninum. Þetta var eitthvað símanúmer sem ég þekkti ekki en ég var sofandi. Hann talaði eitthvað inn á talhólfið mitt en mér datt einmitt strax í hug að þetta væri hann. Ég komst síðan að því seinna í vikunni að þetta hafi verið hann sem hringdi úr þessum síma vegna þess að mér datt í hug árla á fimmtudagsmorgni að hringja í þetta símanúmer og kanna hver þetta væri. Hversu klikkað er það? Þar frétti ég að hann hafi verið að hringja í mig og að hann hafi misst símann sinn ofan í sjóinn. Þar kom skýringin af hverju sms-in mín hafa ekki farið til hans, vegna þess að ég hef prófað að senda honum sms á hverju kvöldi í 4 vikur og hef alltaf haft report á og það hefur aldrei farið til hans. En þá kemur annað, hvernig vissi hann þá símanúmerið hjá mér?

Ég frétti reyndar líka að hann hafi farið á anna bát í páskafríinu sem er gerður út héðan.Og ég get svo svarið fyrir það að ég hef verið daglegur gestur á bryggjunni síðan þá í von um að báturinn sé kominí land! Hversu veikt er það?

Ég gerði einnig heiðarlega tilraun til þess að hringja í hann um páskana, ég reyndi að hringja um borð í bátinn sem hann er á en ég náði engu sambandi, þeir eru örugglega ekki í símasambandi.

En alla veganna þá get ég ekki hætt að hugsa um þennan strák einhverja hluta vegna! Og alltaf þegar ég hugsa um hann þá fæ ég fiðrildi á magan! Er það ekki merki um að ég sé ástfanginn? En samt finnst mér geðveikt skrítið að vera ástfangin af einhverjum strák sem ég varla þekki! Og annað, ég á ofsalega erfitt með að verða ástfanginn af einhverjum en þegar ég verð það þá verð ég það svo mikið, virðist ekki vera til neinn millivegur hjá mér!

Síðan koma alveg spurningar upp í huga minn, ég meina af hverju er hann ekki búinn að hafa samband? Og ef hann hefði áhuga þá væri hann búin að hafa samband. Eða er það ekki? Einhvers staðar las ég það alla veganna.

Mín reynsla hefur verið þannig samt í gegnum líf mitt að ef ég geri ekki eitthvað í hlutunum þá gerist ekkert! En kannski er það þess vegna sem það hefur ekki gegnið upp, það er spurning! En ég nenni ekki meira, endilega segi þið það sem ykkur finnst um þetta mál!


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 21722
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
RSS tengill